Styrkur frá Oddfellow

  1. /
  2. 2019
  3. /
  4. maí
  5. /
  6. 5
  7. /
  8. Styrkur frá Oddfellow

Það var mikil gleðistund fimmtudaginn 2. maí þegar Oddfellowstúkurnar Þórsteinn (nr.5), Þorgeir (nr.11) og Baldur (nr.20) buðu okkur til sín á afmælisfund og afhentu okkur styrk að upphæð 3.000.000 kr. Peningurinn verður nýttur til að byrja að breyta húsnæðinu fyrir núverandi nemendur og til að geta tekið á móti þeim sem hafa óskað eftir að koma í Arnarskóla. Það er okkur ómetanlegt að fá svona styrk og kunnum við þeim okkar bestu þakkir fyrir.