Events

ARNARSKÓLI 4 ÁRA

Þann 1. september síðastliðinn varð Arnarskóli 4 ára. Á þessum 4 árum hefur skólinn stækkað mikið og dafnað. Það voru 2 ungir nemendur sem byrjuðu 1. september 2017 en í dag stunda nú 34 nemendur nám í Arnarskóla. Til þess að sinna þessum 2 nemendum sem byrjuðu voru 3 starfsmenn auk stjórnenda en í dag eru 64 starfsmenn í skólanum. Tveir nemendur hafa flutt sig í aðra grunnskóla og í vor útskrifaðist fyrsti nemandinn úr 10. bekk og er kominn í framhaldsskóla.

UMSÓKNIR FYRIR NÆSTA VETUR- ÞARF AÐ SÆKJA UM AFTUR

Því miður þá virðast umsóknir fyrir nýja nemendur ekki hafa borist okkur frá því í sumar en við höfum fregnir af því að fólk hafi sótt um og umsóknin ekki borist. Ef þú hefur sótt um skólavist fyrir barnið þitt og ekki heyrt frá okkur þá biðjum við þig um að fylla aftur út umsókn og senda okkur tölvupóst á netfangið arnarskoli@arnarskoli.is. Við höfum samband við ykkur innan viku. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum. Í inntökuferlinu er ekki horft til tímasetningar umsóknar hjá inntökuteyminu, þannig að þeir nemendur sem sækja fyrr um eru ekki framar í forgangi.

UMSÓKNARFRESTUR REYKJAVÍKURBARNA

UMSÓKNARFRESTUR REYKJAVÍKURBARNA

Við viljum benda forsjáraðilum barna í Reykjavík sem vilja sækja um skólavist í Arnarskóla að þeir þurfa að sækja um fyrir 1. febrúar til Reykjavíkurborgar, til þess að fá mat á stöðu nemandans hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. En umsóknarfrestur í Arnarskóla er áfram 1. mars. Þetta á eingöngu við um nemendur frá Reykjavík.