Tengiliður farsældar í Arnarskóla er Steinunn Hafsteinsdóttir
Símanúmer: 426 5070
Netfang: steinunn@arnarskoli.is
Tengiliður farsældar er:
- starfsmaður í nærumhverfi barns og foreldra þess.
- sá aðili sem styður við samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
- sá sem veitir fjölskyldunni upplýsingar um þjónustu, tryggir aðgang að frummati, styður við samþættingu á fyrsta stigi þjónustu og kemur upplýsingum áfram ef þörf er á samþættingu á öðru stigi.
Hlutverk tengiliðar farsældar er:
- að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi.
- að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn.
- að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
- að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.
- að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
- að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra.
- að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.
Nánar má lesa um farsældarlögin hér