Framkvæmdastjóri

María Sigurjónsdóttir

María Sigurjónsdóttir

María er einn af stofnendum Arnarskóla og er í framkvæmdarstjórn skólans. Hún er þroskaþjálfi og klínískur atferlisfræðingur með vottun frá Satís.
Hún útskrifaðist frá HÍ með B.ed gráðu í þroskaþjálfafræðum árið 1999. Hún lauk MSc gráðu í sálfræði með áherslu á atferlisgreiningu árið 2013. Samhliða námi sínu sótti hún sér handleiðslu hjá BCBA vottuðum handleiðara, þar sem hún vann 1500 tíma með leiðsögn handleiðara.

María hóf störf í Arnarskóla í september 2017. Hún er þroskaþjálfi með yfir 30 ára reynslu af vinnu með fötluðu fólki. María hóf störf á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins árið 1999 og hefur starfað þar samfleytt síðan sem atferlisráðgjafi í snemmtækri íhlutun. María hefur ávallt lagt mikið kapp við að auka við og viðhalda þekkingu sinni. Hún hefur sótt fjölda námskeiða og ráðstefnur um einhverfu og atferlisíhlutun. . María hefur haldið fjöldamörg námskeið um atferlisíhlutun. Netfangið hennar er maria@arnarskoli.is

Contact Information