Atli Magnússon
Framkvæmdastjóri
Atli er einn af stofnendum Arnarskóla og er í framkvæmdarstjórn skólans. Hann er klínískur atferlisfræðingur með vottun frá Satís.
Atli hóf störf í Arnarskóla í september 2017. Hann hefur starfað með fötluðu fólki á öllum aldri samfellt í meira en tuttugu ár. Atli lauk MSc gráður í hagnýtri atferlisgreiningu frá Northeastern University árið 2002 og hlaut BCBA vottun síðar sama ár. Atli starfaði í sex ár hjá New England Center for Children þar sem hann stýrði deild fyrir fötluð börn með alvarlegan hegðunarvanda. Síðustu ár hefur Atli starfað hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins sem atferlisráðgjafi og skorarstjóri ráðgjafar á leikskólaskor. Atli hefur kynnt eigin rannsóknir sem og haldið fjölda fyrirlestra á innlendum og erlendum ráðstefnum um atferlisgreiningu.
Netfangið hans er atli@arnarskoli.is